Samtök Dragnótamanna
Valin var undirbúningsnefnd sem skipuð var eftirtöldum mönnum: Einari Sigurðssyni Þorlákshöfn, Ólafi Eggertssyni Reykjavík, Óttari Guðlaugssyni Ólafsvík, Sigurði Jónssyni Hellissandi og Friðriki G. Halldórssyni Reykjavík.
Nefndin sendi bréf til allra sem fengið höfðu leyfi til dragnótaveiða árið 1994. Stofnfundur var síðan haldinn á hótel Sögu laugardaginn 4 febrúar 1995. Á stofnfundinn mættu 32 aðilar og fleiri tilkynntu þátttöku. Samþykktar voru félagasamþykktir og skipun stjórnar.
Tilgangur félagsins var ákveðinn í megindráttum að kynna ráðamönnum veiðarnar og eyða þeim dylgjum og aðför að þessari veiðiaðferð, sem voru í gangi. Samþykkt var að félagið tæki ekki afstöðu til svæðisskiptinga en stæði vörð um áframhaldandi veiðar allt í kringum landið.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að efla samheldni með íslenskum dragnótaútgerðarmönnum og gæta hagsmuna þeirra. Stuðla að vísindalegum rannsóknum á áhrifum dragnótaveiða á lífríkið í samvinnu við starfsmenn Hafrannsóknarstofnunnar sem og öðrum áhugamönnum um vistkerfið. Efna til funda um veiðarnar og tengd málefni. Starfa með hagsmunasamtökum í sjávarútvegi s.s. LÍÚ og einstökum útvegsmannafélögum um allt land.
