Samtök dragnótamanna taka heilshugar undir efnistök Pawels Bartoszek sjá umfjöllun á eyjan.is um störf Jóns Bjarnasonar, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Samtökin geta bætt við þennan lista yfir ófagleg vinnubrögð ráðherrans fyrrverandi, þar sem hann fer gegn almannahagsmunum til að þjóna örfáum frístundasjómönnum og lokaði á vistvænar strandveiðar með dragnót. Skýrslu Hafró um áhrif dragnótaveiða á botndýralíf í innanverðum Skagafirði var stungið undir stól. Hún þjónaði ekki þeirri pólitík sem ráðherrann fyrrverandi stendur fyrir og hefur falið BíoPol á Skagaströnd að rannsaka lífríkið, líklega í von um niðurstöðu sem fellur að þeirri afturhaldssömu pólitík sem fyrrverandi ráðherra stendur fyrir. Ekki ætlum við að gefa okkur fyrirfram að Jóni verði að ósk sinni fyrr en niðurstaða liggur fyrir. Þegar vísindastofnun getur ekki skilað niðurstöðum sem falla að pólitískri stefnu, þá er bara að skipta um stjórnarformann! Það sem ráðherranum fyrrverandi yfirsést er að Hafró vinnur eftir alþjóðlegum vísindaaðferðum og þær breytast ekkert við það að skipta um stjórnarformann.
GreinPawels má lesa hér.
