Aðalfundur Samtaka dragnótamanna verður haldinn laugardaginn 26. nóvember 2011 á Fosshótel Lind, Rauðarárstíg 18 kl. 14:00.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa munu gestafyrirlesarar frá Hafrannsóknastofnuninni mæta. Samtök dragnótamanna hafa einnig farið þess á leit við sjávarútvegsráðherra að hann eða fulltrúi hans kynni fyrir fundarmönnum hvað það er í lífríkinu á grunnslóð sem hann telur að dragnótin ógni. Víðtækar lokanir veiðisvæða eru farnar að ógna tilvist þessa grunnveiðarfæris. Ráðherra hefur enn ekki svarað þessari umleitan.
