Ánægjuleg viðbrögð Jóns Bjarnasonar

Það var ánægjulegt að heyra viðbrögð Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þar sem hann segir hvorki lagalegan né vísindalegan grundvöll fyrir aðgerðum Bandaríkjanna vegna hvalveiða Íslendinga.

Það væri enn ánægjulegra ef hann liti sér nær og skoðaði hvað hann er sjálfur að gera þeim sem stunda dragnótaveiðar. Hann hefur tekið einn og óstuddur , einhliða ákvörðun, án nokkurs samráðs við hagsmunaaðila og án nokkurra vísindalegra eða vistfræðilegra raka um að loka stórum svæðum fyrir dragnótaveiðum og gert útgerðum nær ómögulegt að stunda sínar veiðar á meðal annars vannýttum tegundum hér við land.

Eini munurinn á aðgerðum Obama og Jóns, er að Obama er að höfða til umhverfis(fasista) en Jón að kaupa sér vinsældir í hópi frístundasjómanna.

This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.